Snyrtistofa Hönnu

Vefverslun með snyrtivörur

0
Your Cart

Skilmálar

GREIÐSLUR OG VERÐ

Allar greiðslur fara í gegnum öruggt vefsvæði borgunar.

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.  Eftir greiðslu á pöntun fær kaupandi staðfestingu í tölvupóst. Snyrtistofa Hönnu áskilur sér rétt til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

SENDINGARMÁTI

Pantanir eru sendar með íslandspósti og gilda almennir afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Snyrtistofa Hönnu tekur enga ábyrgð á vörum eftir að þær hafa verið póstlagðar. Sendingartími er 2-4 virkir dagar að jafnaði.  Snyrtistofa Hönnu tekur ekki ábyrgð á að viðskiptavinir séu með rétt merkta póstkassa eða póstlúgur, í þeim tilfellum þar sem merkinga er ábótavant mun Íslandspóstur senda pöntuna til baka og lendir tilfallandi kostnaður á kaupanda.
Sendingarkostnaður er greiddur af kaupanda og er eftir verðskrá Íslandspósts. 

– Frí sending ef verslað er fyrir 12.000 kr.

Einnig er hægt að nálgast vörur í verslun

SKILAFRESTUR OG ENDURGREIÐSLA

Skilafrestur pantana er 10 dagar frá kaupdegi. Einungis er hægt að skila vörum sem eru ónotaðar og/eða enn í upprunalegum umbúðum og innsigli hefur ekki verið rofið.

Endurgreiðsla fer fram þegar varan er komin aftur í hendur seljanda. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

PERSÓNUUPPLÝSINGAR OG TRÚNAÐUR

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.


VARNARÞING

Viðskipti við Snyrtistofu Hönnu er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.


VAFRAKÖKUR (e. cookies)

„Cookies“ eða vafrakökur eru upplýsingar sem vefforrit neytanda geymir í tölvu hans að beiðni netþjóna. Snyrtistofa Hönnu (storkaþing ehf.) notar þessar upplýsingar til að vita hversu oft neytandi heimsækir vefsíðuna, vefverslunina, hvað neytandi setur í körfuna sína, hvernig fyrri pantanir neytanda voru og til að kynna neytanda fyrir vörum sem gætu vakið áhuga.
Vafrakökurnar eru hannaðar til að þjóna þörfum neytanda og notar Snyrtistofa Hönnu (storkaþing ehf.)  vefkökur aðallega til að gera vefsíðuna og vefverslunina ánægjulegri í notkun fyrir neytandann.

Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir taka sjálfvirkt við vafrakökum en hægt er að stilla þá þannig að neytandi þurfi að samþykkja hvert tilvik. Enda þótt neytandi kýs að leyfa ekki vafrakökur getur neytandi samt sem áður notað flest alla hluta vefsíðu Snyrtistofa Hönnu (storkaþing ehf.), þar á meðal verslunarkerfið.

Með því að nota vefverslun Snyrtistofa Hönnu (storkaþing ehf) samþykkir neytandi að Snyrtistofa Hönnu (Storkaþing ehf.)  safni upplýsingum sjálfkrafa með vafrakökum.

Snyrtistofa Hönnu / Storkaþing ehf kt: 631213-1110