Frábært tilboð á einu af söluhæsta kreminu frá Janssen Cosmetics “Vitaforce C Cream” sem hefur bæði hlotið verðlaun fyrir framúrskarandi nýjung á markaði og fyrir sýnilegan árángur á húð.
Nýja SUPERFRUIT BOX inniheldur 1x Vitaforce C Cream 50ml og 7 Superfruit Ampúlur sérþróaðar frá Janssen Cosmetics til að ganga með og auka virkni með kreminu gegn sindurefnun og ótímabærri öldrun húðarinnar.
Virka innihaldsefnið í kreminu er eins og nafnið gefur til kynna C Vítamín og nóg af því í sínu hreinasta formi!
Það hefur verið vísindalega sannað að hreint C Vítamín hefur hvað mest áhrif á aukningu og örvun húðfrumna á kollagen framleiðslu og styrkir þannig og bætir við brotna eða skemmda kollagenþræði húðarinnar.
Vitaforce C Cream hefur mild örvandi áhrif á yfirborði húðarinnar og eykur þannig blóðflæði og innsíun á virkum efnum niður í neðstu húðlögin, við þetta fær húðin samstundis frísklegri húðlit og útgeislun.
Kremið inniheldur einnig E-vítamín sem vinnur fullkomnlega með gegn öldrun húðarinnar og ver hana fyrir sindurefnum (free radicals)
Árángurinn er sjáanleg aukning í þéttleika og fyllingu húðarinnar sem við það lyftist upp og viðheldur betri teygjanleika.
Húðlitur verður frísklegri og bjartari, stórar húðholur dragast saman og húðin fær sléttara og bjartara yfirbragð.
Hentar öllum húðgerðum sem mega við örvun og vantar aukna orku og þéttleika.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.